Smelltu hér til að sjá fyrri útgáfu notkunarskilmálanna.
Temu | Ísland | Notkunarskilmálar
Takk fyrir að nota Temu! Þessir notkunarskilmálar („skilmálar“) innihalda reglur og takmarkanir sem gilda um notkun þína á forritum okkar, vörum, þjónustu og vefsvæðum („þjónusta“). Þessir skilmálar mynda bindandi samning milli þín og okkar. Með því að ljúka skráningarferlinu og/eða skoða þjónustuna lýsir þú því yfir að (1) þú hafir lesið, skiljir og samþykkir að vera bundin(n) af þessum skilmálum; (2) þú hafir náð lögaldri og hafir hæfi til að gera bindandi samning við okkur; og (3) þú hafir heimild til að gangast undir þessa skilmála persónulega. Þú skalt ekki opna eða nota þjónustuna nema þú samþykkir að vera bundin(n) af öllum þessum skilmálum.
1. Yfirlit
1.1 Þessir skilmálar eru á milli þín og Whaleco Technology Limited, sem er írskt fyrirtæki.
1.2 Í þessum skilmálum og stefnum (eins og þau eru skilgreind hér að neðan) er vísað til Whaleco Technology Limited og/eða hlutdeildarfélaga þess sem „við“ eða „okkur“. Í þessum skilmálum og stefnum vísum við einnig til:
vefsvæðis okkar og smáforrita fyrir farsíma, sem gætu boðið upp á eiginleika, vörur, þjónustu eða efni, þar á meðal upplýsingaskipti, sem „Temu“ eða „appið okkar“; og
endanlegra notenda, þar á meðal gesta á Temu og þeirra sem nota Temu til að kaupa vörur, sem „þú“.
1.3 Við og hlutdeildarfélög okkar veitum tækni- og rekstraraðstoð fyrir þjónustu okkar. Þú getur greitt fyrir margar pantanir í einni færslu á Temu. Margar pantanir geta verið afhentar saman í einum pakka.
1.4 Notkun þín á og þátttaka í tiltekinni þjónustu falla einnig undir aðrar stefnur sem við kunnum að birta öðru hverju, þar á meðal persónuverndarstefnu og stefnu um vafrakökur og svipaða tækni sem lýsa því hvernig við vinnum persónuupplýsingarnar þínar („stefnur“). Ef þessir skilmálar stangast á við stefnurnar skulu stefnurnar gilda að því er varðar viðkomandi efni.
1.5 Við áskiljum okkur rétt til að gera breytingar á þessum skilmálum, þar á meðal til að gera þessa skilmála skýrari eða auðskiljanlegri, til að endurspegla allar breytingar eða endurbætur sem við gerum á þjónustunni, til að uppfylla kröfur samkvæmt lögum eða reglum, til að bregðast við öryggismálum og/eða til að tryggja áframhaldandi rekstur og framkvæmd þjónustunnar. Við munum tilkynna þér með hæfilegum fyrirvara um allar efnislegar breytingar með tölvupósti eða öðrum leiðum í samræmi við gildandi lög til að þú fáir tækifæri til að fara yfir þær áður en þær taka gildi. Ef þú samþykkir ekki breytingarnar skalt þú að hætta að nota þjónustuna áður en þær taka gildi. Við hvetjum þig til að skoða þessa skilmála reglulega til að sjá nýjustu útgáfuna.
2. Kröfur til notenda og nýskráning
2.1 Til að nota þjónustuna þarft þú að staðfesta að þú notir þjónustuna eingöngu til einkanota (ekki í viðskiptalegum tilgangi) og að þú sért að minnsta kosti átján (18) ára og hafir náð lögaldri til að gera bindandi samning. Börnum sem eru yngri en 18 ára eða ólögráða samkvæmt gildandi innlendum lögum á hverjum stað er ekki heimilt að nota Temu eða þjónustuna. Þó að vörur fyrir börn séu hugsanlega seldar á Temu eru þær aðeins ætlaðar til sölu til fullorðinna. Tilteknar vörur kunna einnig að vera einungis ætlaðar einstaklingum á ákveðnum aldri eða „fullorðnum viðtakendum“. Með því að panta slíkar vörur staðfestir þú að þú hafir náð lágmarksaldri til að skoða, nota, eiga eða taka við þeim. Við berum ekki ábyrgð á efni frá þriðju aðilum sem þér kann að finnast móðgandi, ósæmilegt eða hneykslanlegt en við kunnum þó að fjarlægja eða takmarka móðgandi eða skaðlegt efni í samræmi við ferla okkar við eftirlit með efni.
2.2 Þér er ekki heimilt að nota þjónustuna ef: (a) þú getur ekki gert bindandi samning við okkur; eða (b) við höfum bannað þér að nota þjónustuna vegna brota á þessum skilmálum eða á grundvelli annarra réttmætra ástæðna.
2.3 Þú kannt að þurfa að stofna reikning á Temu til að fá aðgang að eða nota suma þjónustu. Þegar þú stofnar reikning á Temu („reikningur“) samþykkir þú að veita sannar, nákvæmar, heildstæðar og uppfærðar upplýsingar um þig, þar á meðal samskiptaupplýsingar. Þú berð ábyrgð á að uppfæra skráningarupplýsingarnar þínar hjá okkur. Nema annað sé tekið fram hér berð þú ábyrgð á allri virkni sem fram fer á reikningnum þínum. Þú samþykkir að þú fylgist með reikningnum þínum til að takmarka notkun ólögráða einstaklinga og að þú takir fulla ábyrgð á hvers konar óleyfilegri notkun ólögráða einstaklinga á þjónustunni. Þú mátt ekki velja notandanafn sem þú hefur ekki rétt til að nota eða nafn annars aðila í þeim tilgangi að villa á þér heimildir. Þú mátt ekki flytja reikninginn þinn yfir á neinn annan nema að fengnu skriflegu leyfi okkar. Við áskiljum okkur rétt til að loka tímabundið eða varanlega á notendur vegna brota á þessum skilmálum og stefnum okkar. Þú samþykkir að stofna ekki reikning eða nota þjónustuna ef þér hefur verið meinaður aðgangur að einhverri þjónustu varanlega. Skoðaðu hluta 3.5 hér á eftir og samfélagsviðmið okkar til að fá upplýsingar um bannaða háttsemi. Þú mátt ekki deila reikningnum þínum eða lykilorði með neinum og þú samþykkir að tilkynna okkur tafarlaust um óleyfilega notkun á lykilorðinu þínu eða aðra öryggisbresti og að skrá þig út af reikningnum þínum í lok hverrar lotu.
2.4 Þú getur einnig skráð reikning með því að tengjast í gegnum reikning á samfélagsmiðlaþjónustu (e. Social Networking Service, hér eftir „SNS“) og innskráningarupplýsingar slíks reiknings („SNS-reikningur“) í samræmi við leyfi Temu. Ef þú færð aðgang að þjónustunni í gegnum SNS sem hluta af virkni þjónustunnar getur þú tengt reikninginn þinn við SNS-reikninga með því að veita okkur aðgang að takmörkuðum upplýsingum SNS-reikningsins þíns í þeim tilgangi sem lýst er hér og í persónuverndarstefnu okkar, eins og heimilt er samkvæmt gildandi skilmálum sem gilda um SNS-reikninginn þinn („SNS-efni“). Þú lýsir því yfir að þú eigir rétt á að veita okkur aðgang að SNS-reikningnum þínum til að nota þjónustuna án þess að brjóta gegn skilmálum sem gilda um SNS-reikninginn þinn og án þess að skylda okkur til að greiða gjöld eða gera okkur háð notkunartakmörkunum sem settar eru af slíkri SNS-þjónustu. Athugaðu að ef SNS-reikningur eða tengd þjónusta verður óaðgengileg eða ef SNS-þjónustan lokar fyrir aðgang okkar að slíkum SNS-reikningi verður SNS-efnið ekki lengur í boði í þjónustunni eða í gegnum hana. Þú getur gert tenginguna á milli reikningsins þíns og SNS-reikninganna þinna óvirka hvenær sem er með því að opna hlutann „Stillingar“ í Temu-appinu eða hlutann „Pantanir og reikningur“ á vefsvæði Temu. ATHUGAÐU AÐ SAMBAND ÞITT VIÐ SNS-VEITENDUR SEM TENGJAST SNS-REIKNINGUNUM ÞÍNUM LÝTUR EINGÖNGU SAMNINGI/SAMNINGUM ÞÍNUM VIÐ SLÍKA SNS-VEITENDUR OG VIÐ HÖFNUM ALLRI ÁBYRGÐ Á PERSÓNUUPPLÝSINGUM SEM SLÍKIR SNS-VEITENDUR KUNNA AÐ VEITA OKKUR Í TRÁSSI VIÐ PERSÓNUVERNDARSTILLINGARNAR SEM ÞÚ HEFUR STILLT Á SLÍKUM SNS-REIKNINGUM. Við leggjum okkur ekki fram um að fara yfir SNS-efni í neinum tilgangi, þar á meðal en ekki takmarkað við, í tilgangi nákvæmni, lögmætis eða til að koma í veg fyrir brot og við berum ekki ábyrgð á neinu SNS-efni.
2.5 Viðeigandi tungumál í þessum skilmálum er tungumálaútgáfan sem samsvarar því landi/svæði sem þú valdir á Temu.
2.6 Gildandi útgáfa þessara skilmála skal alltaf birt og þú hefur heimild til að prenta eða vista rafræn eintök af henni.
3. Reglur og takmarkanir
3.1 Þú samþykkir að nota þjónustuna til eigin nota, en ekki fyrir hönd eða í þágu þriðja aðila, og aðeins á þann hátt sem er í samræmi við þessa skilmála, stefnurnar og öll lög og reglugerðir sem eiga við um þig. Ef notkun þín á þjónustunni er bönnuð samkvæmt gildandi lögum hefur þú ekki leyfi til að nota þjónustuna. Við berum ekki ábyrgð á neinni notkun þinni á þjónustunni sem brýtur í bága við gildandi lög.
3.2 Þú berð ábyrgð á allri virkni sem tengist reikningnum þínum. Þess vegna verður þú að tryggja öryggi reikningsins þíns og lykilorðsins og ekki deila þeim með neinum þriðja aðila. Þú verður að tilkynna okkur tafarlaust óheimila notkun eða öryggisbrest á reikningnum þínum.
3.3 Þú mátt ekki stofna marga reikninga.
3.4 Sérstakar reglur kunna að gilda um hvers konar happdrætti, keppnir, hlutaveltur, kannanir, leiki eða áþekkar kynningar (sameiginlega „kynningar“) sem boðið er upp á í gegnum þjónustuna, að því marki sem gildandi lög leyfa. Ef reglur um kynningu stangast á við þessa skilmála skulu reglur kynningarinnar gilda.
3.5 Þegar þú notar þjónustuna samþykkir þú og skuldbindur þig til að fylgja samfélagsviðmiðum okkar og leiðbeiningum um umsagnir og grípa ekki til neinna aðgerða eða gera notandainnsendingar (eins og þær eru skilgreindar hér á eftir í hluta 6.1) aðgengilegar í gegnum þjónustuna sem kunna að leiða til þess að þú:
(1) brjótir í bága við eða skerðir réttindi annarra, þ.m.t. hugverkaréttindi;
(2) brjótir í bága við þessa skilmála, stefnurnar, samfélagsviðmið okkar eða leiðbeiningar um umsagnir eða gildandi lög og reglugerðir;
(3) takir þátt í hvers konar ólöglegri, skaðlegri, móðgandi, villandi, rangri, sviksamlegri, blekkjandi, ógnandi, áreitandi, niðrandi, ærumeiðandi, klámfenginni, dónalegri, svívirðilegri eða á annan hátt hneykslanlegri hegðun eða mismunun;
(4) sniðgangir eða reynir að sniðganga einhver af þessum skilmálum, stefnurnar eða aðrar reglur sem tengjast þjónustunni, þar á meðal kynningunum;
(5) búir til óleyfilegar eða óumbeðnar auglýsingar eða ruslpóst eða fjöldapóst;
(6) safnir persónuupplýsingum frá öðrum notendum eða notir slíkar upplýsingar sem safnað er frá þjónustunni;
(7) takir þátt í hvers konar háttsemi sem er líkleg til að valda öryggisbresti á reikningnum þínum;
(8) komist yfir aðgangsorð annars notanda, reikningsupplýsingar eða aðrar öryggisupplýsingar;
(9) notir auðkenningu þriðja aðila, leynir raunverulegri IP-tölu þinni eða á annan hátt þykist vera einhver annar eða villir á þér heimildir um auðkenni þitt eða tengsl þín við einstakling eða lögaðila;
(10) brjótir í bága við eða truflir eðlilega virkni eða öryggi einhvers tölvunets;
(11) notar hvers konar sjálfvirka svörun eða „ruslpóst“ í þjónustunni, hvers konar ferli sem er keyrt eða virkjað á meðan þú ert ekki skráð(ur) inn í þjónustuna eða hvers konar ferli sem truflar að öðru leyti rétta virkni þjónustunnar (þ.m.t. með því að setja óeðlilegt álag á innviði þjónustunnar með yfirálagi, „offyllingu“, „póstsprengju“ eða með því að valda hruni vefsíðunnar);
(12) valdir hugsanlega skaða á þjónustunni, þar með talið en ekki takmarkað við, brot gegn öryggiseiginleikum þjónustunnar, notkun á handvirkum eða sjálfvirkum hugbúnaði eða öðrum aðferðum til að fá aðgang að, nota „vefskrið“, „skröpun“ eða „vefskriðil“ á vefsíðu, gögnum eða hluta sem tengist þjónustunni eða innleiðingu á vírusum, ormum eða svipuðum skaðlegum kóða í þjónustuna;
(13) afritir eða geymir umtalsverðan hluta efnisins í þjónustunni án skriflegs samþykkis frá okkur;
(14) bakþýðir, vendismíðir eða komist á annan hátt yfir frumkóða eða undirliggjandi hugmyndir eða upplýsingar um eða í tengslum við þjónustuna;
(15) kaupir vörur sem þú hefur ekki leyfi til að kaupa eða nota samkvæmt lögum;
(16) misnotir kynningar, afslætti eða önnur fríðindi sem við bjóðum upp á eða hafir áhrif á verð skráðra vara eða truflir skráningar; eða
(17) reynir að gera hvað sem er, eða heimilar, hvetjir til, aðstoðir eða leyfir þriðja aðila að gera eitthvað af því sem er bannað samkvæmt þessum lista.
Til viðbótar við önnur úrræði sem okkur standa til boða telst brot á einhverju framangreindu ástæða til að:
(1) fjarlægja, takmarka eða neita að birta notandainnsendingar;
(2) afturkalla eða takmarka kaup þín á vörum;
(3) afturkalla eða takmarka verðlaun eða greiðslur frá okkur; og/eða
(4) loka tímabundið, segja upp eða takmarka á annan hátt aðgang þinn að eða notkun á einhverjum eða öllum hlutum þjónustunnar.
Ef við verðum þess áskynja að þú hafir hugsanlega brotið gegn þessum skilmálum áskiljum við okkur rétt til að rannsaka slík brot. Ef við teljum að glæpsamlegt athæfi hafi átt sér stað í kjölfar rannsóknarinnar áskiljum við okkur rétt til að vísa málinu til og vinna með öllum viðeigandi yfirvöldum. Okkur er heimilt, nema að því marki sem það er bannað samkvæmt gildandi lögum, að gefa upp upplýsingar eða efni á eða í þjónustunni, þar á meðal notandainnsendingar, sem við eigum í tengslum við notkun þína á þjónustunni til að (i) fylgja gildandi lögum, lagaferlum eða beiðnum yfirvalda; (ii) framfylgja þessum skilmálum og stefnunum, (iii) svara öllum fullyrðingum þess efnis að notandainnsending brjóti í bága við réttindi þriðja aðila, (iv) svara beiðnum þínum um aðstoð frá þjónustuveri eða (v) vernda réttindi, eignir eða persónulegt öryggi okkar, notenda okkar eða almennings og allra starfsmanna löggæslu eða annarra opinberra starfsmanna og (vi) eins og að öðru leyti er kveðið á um í persónuverndarstefnunni, eins og við teljum með sanngirni nauðsynlegt eða viðeigandi og að því tilskildu að slík upplýsingagjöf sé í samræmi við gildandi lög, þar á meðal gildandi lög um gagnavernd og persónuverndarlög.
4. Persónuvernd
4.1 Persónuverndarstefna okkar veitir upplýsingar um hvernig við söfnum, notum og birtum persónuupplýsingar þínar þegar þú opnar, heimsækir eða notar þjónustuna. Í tengslum við notkun þína á þjónustunni staðfestir þú að við kunnum að safna, fá aðgang að, nota, varðveita og birta persónuupplýsingar þínar (þ.m.t. reiknings- og notandaupplýsingar þínar) eins og lýst er í þessum skilmálum og í persónuverndarstefnunni, sem þú staðfestir að þú hafir lesið.
5. Samskipti
5.1 Þú staðfestir að þér kunna að berast rafræn samskipti frá okkur, svo sem tölvupóstur, textaskilaboð, sjálfvirkar tilkynningar og meldingar og skilaboð í eða í gegnum þjónustuna („sjálfvirk skilaboð“) og þegar þess er krafist samkvæmt lögum munum við fá samþykki þitt til að senda slík sjálfvirk skilaboð í samræmi við þær kröfur sem gildandi lög gera. Þú staðfestir að þegar þú notar appið getur verið að þráðlausa þjónustuveitan þín innheimti gjöld fyrir gögn, textaskilaboð og/eða annan þráðlausan aðgang, þar með talið í tengslum við sjálfvirk skilaboð. Hafðu samband við þráðlausu þjónustuveituna þína til að fá að vita hvaða gjöld eiga við um aðgang þinn og notkun á þjónustunni, þar á meðal móttöku á sjálfvirkum skilaboðum frá okkur. Þú berð alla ábyrgð á öllum gjöldum, kostnaði eða útgjöldum sem þú stofnar til vegna niðurhals, uppsetningar og/eða notkunar á þjónustunni í fartækinu þínu, þar á meðal vegna móttöku á sjálfvirkum skilaboðum. Þú staðfestir jafnframt og samþykkir að allir skilmálar, samningar, tilkynningar, upplýsingar og önnur samskipti og gögn sem við látum þér í té rafrænt teljist hafa sömu réttaráhrif og ef þau væru „skrifleg“.
5.2 Þú staðfestir að við kunnum að eiga í samskiptum við þig í gegnum hvaða netfang eða símanúmer sem þú gefur okkur upp til að: (i) upplýsa þig um atriði sem tengjast reikningnum þínum; (ii) leysa úr vandamálum varðandi reikninginn þinn; (iii) leysa úr ágreiningi; (iv) innheimta skuld; (v) kanna skoðanir þínar með könnunum eða spurningalistum; (vi) senda þér tilkynningar varðandi pantanir þínar, greiðslur og afhendingu; (vii) senda þér auðkenningarskilaboð, þar á meðal einkvæma aðgangskóða; eða (viii) að öðru leyti eins og nauðsynlegt telst til að þjónusta reikninginn þinn eða framfylgja þessum skilmálum, stefnunum, gildandi lögum og reglugerðum eða öðrum samningi sem við kunnum að hafa gert við þig í samræmi við viðeigandi heimildir, stillingar og kjörstillingar, eftir því sem við á. Gjöld fyrir textaskilaboð og gagnaflutning kunna að eiga við.
5.3 Ef þú vilt fá markaðsefni frá okkur í gegnum textaskilaboð, tölvupóst eða með öðrum leiðum getur þú stofnað áskrift til að fá slíkt efni. Þegar þú hefur veitt okkur heimild þína, ef nauðsyn krefur og í samræmi við staðla sem lög kveða á um, sendum við þér markaðsefni með því að nota samskiptaupplýsingarnar sem þú gefur okkur upp. Að samþykkja þátttöku í einni leið felur ekki í sér sjálfvirka þátttöku í annarri. Þér verður gefinn kostur á að afþakka markaðsefni með því að fylgja tilgreindum leiðbeiningum. Gjöld fyrir textaskilaboð og gagnaflutning kunna að eiga við. Þú staðfestir að þú þurfir ekki að samþykkja að fá markaðsefni sem skilyrði fyrir notkun þjónustunnar.
5.4 Samskipti okkar við þig kunna að fara fram í gegnum þjónustuveitanda sem er þriðji aðili. Þú staðfestir að, í samræmi við persónuverndarstefnu okkar, kunna samskipti þín við okkur, fulltrúa okkar eða viðskiptaaðilana sem eru þriðju aðilar að vera skráð, vöktuð og geymd vegna gæðaeftirlits og þjálfunar eða til að vernda hagsmuni þína, okkar og/eða viðskiptaaðilanna.
6. Notandainnsendingar
6.1 „Notandainnsending“ merkir allt sem þú birtir, hleður upp, deilir, sendir inn, geymir eða útvegar á annan hátt í gegnum þjónustuna, þ.m.t. tillögur, athugasemdir, umsagnir, einkunnir, myndir, myndbönd, aðra endurgjöf eða efni eða SNS-efni sem aðrir notendur geta skoðað.
6.2 Fyrir allar notandainnsendingar veitir þú okkur fullgreiddan, almennan, framseljanlegan, alþjóðlegan rétt sem ekki er háður þóknun og gefa má út undirleyfi fyrir, sem og leyfi til að nota, veita leyfi fyrir, geyma, birta, endurgera, vista, breyta (t.d. til að tryggja að notandainnsending sé sýnileg í mismunandi kerfum og tækjum), búa til afleidd verk úr, sýna opinberlega, birta opinberlega, dreifa, þýða eða á annan hátt bregðast við slíkum notandainnsendingum sem við teljum nauðsynlegt til að reka, markaðssetja og auglýsa þjónustuna, þar með talið til að kynna, birta eða framkvæma slíkar notandainnsendingar í samræmi við þínar óskir, ávallt í samræmi við gildandi lög um gagnavernd og önnur gildandi lög.
6.3 Þú staðfestir og samþykkir að allar notandainnsendingar (þar á meðal notandanafnið sem þú bjóst þær til með) eru ekki trúnaðarmál og ekki einkaleyfisvarðar (þó að undanskildum samskiptum sem þú átt beint við Temu í þeim tilgangi að leggja fram tilkynningu eða kvörtun eða leysa úr þjónustuvandamálum sem verða meðhöndluð sem trúnaðarmál).
6.4 Þú ábyrgist að þú eigir eða stjórnir á annan hátt öllum réttindum á notandainnsendingum og að notkun okkar á notandainnsendingum muni ekki brjóta gegn réttindum neins þriðja aðila eða brjóta gegn neinum af þeim reglum og takmörkunum sem er að finna í þessum skilmálum (þar á meðal þeim sem er að finna í hluta 3 hér).
6.5 Við lýsum ekki yfir stuðningi í tengslum við neinar notandainnsendingar og þær endurspegla ekki skoðanir okkar. Við höfnum sérstaklega allri ábyrgð á notandainnsendingum eða tjóni sem hlýst af þeim. Við ætlumst til þess að notendur okkar sýni ýtrustu sómakennd við notandainnsendingar sem aðrir notendur geta skoðað, sérstaklega með tilliti til einkunna og umsagna um vörur. Þú ábyrgist að notandainnsendingar sem aðrir notendur geta skoðað séu gerðar í góðri trú og aðeins byggðar á eigin persónulegu reynslu. Þú ábyrgist enn fremur að þú munir taka það skýrt fram ef notandainnsending var kostuð eða greitt var fyrir hana á einhvern hátt. Þú staðfestir að okkur ber engin skylda til að forskoða notandainnsendingar, þó svo að við áskiljum okkur rétt til að forskoða, hafna, útiloka eða fjarlægja notandainnsendingar. Með því að gangast undir þessa skilmála veitir þú hér með óafturkræft samþykki þitt fyrir slíku eftirliti og stjórnun. Ef við forskoðum, höfnum, útilokum eða fjarlægjum notandainnsendingar staðfestir þú að það sé gert til að viðhalda öryggi og traustleika þjónustunnar. Án þess að takmarka framangreint höfum við rétt til að fjarlægja allar notandainnsendingar sem brjóta í bága við þessa skilmála eða eru á annan hátt hneykslanlegar.
7. Eignarhald
7.1 Þú staðfestir og samþykkir að allt efni sem birtist, er sýnt eða er aðgengilegt í eða í gegnum þjónustuna, þar með talið en ekki takmarkað við, texta, myndefni, gögn, greinar, ljósmyndir, myndir, myndskreytingar og notandainnsendingar (sameiginlega „efni“), kann að vera verndað af höfundarrétti og/eða öðrum hugverkaréttindalögum um allan heim. Þú skuldbindur þig til að fara eftir öllum tilkynningum sem varða höfundarrétt, vörumerkjareglur, upplýsingar og takmarkanir sem tengjast efninu og ekki afrita, endurgera, breyta, þýða, birta, senda út, senda, dreifa, flytja, hlaða upp, sýna, veita leyfi fyrir, selja eða nota á annan hátt efni sem þú átt ekki án fyrirframsamþykkis eiganda efnisins.
7.2 Við virðum hugverkaréttindi annarra og áskiljum okkur rétt til að eyða eða gera óvirkt efni sem talið er brjóta gegn hugverkaréttindum annars einstaklings og loka reikningum þeirra sem grunur leikur á að hafi brotið gegn slíkum réttindum. Frekari upplýsingar um hvernig tilkynna má efni sem brýtur mögulega gegn réttindum er að finna í stefnu okkar um hugverkarétt.
7.3 Þú staðfestir og samþykkir að við eigum eða veitum leyfi fyrir þjónustunni. Þú skuldbindur þig til að ekki breyta, birta, senda, taka þátt í yfirfærslu eða sölu á, endurgera, búa til afleidd verk sem byggjast á eða á annan hátt nýta þjónustuna, nema að því leyti sem sérstaklega er kveðið á um í þessum hluta 7.
7.4 Með fyrirvara um að þú fylgir þessum skilmálum og öllum gildandi stefnum, reglum og viðmiðum/leiðbeiningum og um greiðslu þína á viðeigandi gjöldum og sköttum veitum við eða efnisveitendur okkar þér takmarkað, almennt, óframseljanlegt leyfi, sem ekki má gefa út sem undirleyfi, til að fá aðgang að og nýta þér þjónustuna í persónulegum en ekki viðskiptalegum tilgangi, eingöngu í því skyni að nota Temu. Öll réttindi sem þér eru ekki sérstaklega veitt í þessum skilmálum eða einhverjum stefnum eða viðmiðum/leiðbeiningum eru áskilin og varðveitt af okkur eða leyfisveitendum okkar, birgjum, útgefendum, rétthöfum eða öðrum efnisveitendum. Leyfi sem við höfum veitt falla úr gildi ef þú ferð ekki að þessum skilmálum eða gildandi stefnum, reglum eða viðmiðum/leiðbeiningum.
7.5 Þú mátt ekki nota neinar upplýsingar sem veittar eru í þjónustunni í viðskiptalegum tilgangi eða nýta þér þjónustuna í þágu annars fyrirtækis nema að fengnu sérstöku leyfi frá okkur. Þú mátt ekki óska eftir, auglýsa eftir eða hafa samband við notendur með neinum hætti vegna ráðninga, samningsgerðar eða í öðrum tilgangi sem tengist ekki þjónustunni sem veitt er í gegnum Temu. Ef þú brýtur gegn þessu ákvæði áskiljum við okkur rétt til að hafna þjónustu, loka reikningum og/eða afturkalla kaup að eigin ákvörðun.
8. Ábyrgðir; áhætta þriðja aðila
8.1 Þú staðfestir og samþykkir að allt efni sem birt er opinberlega eða sent í trúnaði í gegnum þjónustuna er alfarið á ábyrgð einstaklingsins sem birti eða sendi slíkt efni. Þú færð aðgang að efninu og notar það og átt í samskiptum við aðra notendur á eigin ábyrgð. Við erum ekki ábyrg fyrir villum, mistökum, efni sem vantar eða ónákvæmni í efninu. Við höfum ekki umsjón með efninu og okkur ber engin skylda til að grípa til aðgerða varðandi það hvernig þú kannt að túlka, nota eða bregðast við efninu. Okkur ber ekki skylda til að fylgjast með efni með fyrirbyggjandi hætti og við samþykkjum það ekki, styðjum það ekki og veitum engar yfirlýsingar eða ábyrgðir í tengslum við það. Þér er einnig ljóst að við getum ekki ábyrgst auðkenni notenda sem þú átt í samskiptum við á meðan þú notar þjónustuna og við berum ekki ábyrgð á því hvaða notendur fá aðgang að þjónustunni.
8.2 Þú berð ábyrgð á öllu efni sem þú leggur til þjónustunnar, á hvaða hátt sem er, og þú lýsir yfir og ábyrgist að þú hafir allan rétt til að leggja þjónustunni til slíkt efni á þann hátt.
8.3 Þjónustan getur innihaldið tengla eða tengingar við vefsvæði eða þjónustu þriðju aðila sem eru ekki í eigu eða undir stjórn okkar. Við höfum enga stjórn á og tökum enga ábyrgð á efni, nákvæmni, persónuverndarstefnum eða starfsemi eða skoðunum sem koma fram á vefsvæðum eða í þjónustu þriðju aðila. Auk þess munum við ekki og getum ekki fylgst með, staðfest, ritskoðað eða breytt efni á vefsvæðum eða í þjónustu þriðju aðila. Þú staðfestir og samþykkir að við berum ekki ábyrgð á áhættu sem getur fylgt aðgangi þínum að eða notkun á vefsvæðum eða þjónustu þriðju aðila. Við hvetjum þig til að vera meðvituð/meðvitaður um það þegar þú yfirgefur þjónustuna og lesa notkunarskilmála og persónuverndarstefnu allra vefsvæða eða þjónustu þriðju aðila sem þú heimsækir eða notar.
8.4 Samskipti þín við aðra notendur, aðra aðila eða einstaklinga, þar með talið en ekki takmarkað við, viðskiptaaðila sem eru þriðju aðilar, vegna notkunar þinnar á þjónustunni, þar á meðal samskipti, greiðslur, efndir og afhendingar, eru eingöngu á milli þín og slíkra þriðju aðila; þó með þeim fyrirvara að við áskiljum okkur rétt til, en berum enga skyldu til, að grípa inn í slík samskipti. Þú skalt gera allar þær kannanir og/eða leita allrar þeirrar faglegrar ráðgjafar sem þú telur nauðsynlegt eða viðeigandi áður en þú stofnar til samskipta við einhvern þessara þriðju aðila. Þú staðfestir og samþykkir að við berum ekki ábyrgð á neinu tjóni sem hlýst af slíkum samskiptum. Þú samþykkir að við berum ekki ábyrgð á neinni skaðabótaskyldu sem hlýst af slíkum samskiptum.
8.5 Það telst verulegt brot á þessum skilmálum að gera ráðstafanir um sölu á skráðum vörum frá, eða greiðslu gjalda til þriðju aðila utan samhengis Temu í þeim tilgangi að komast hjá þeirri skyldu að greiða gjald fyrir vörur sem keyptar eru í gegnum þjónustuna.
9. Fyrirvari
9.1 Við berum ekki ábyrgð á kröfum eða deilum sem upp kunna að koma milli notenda Temu. Ef upp kemur ágreiningur milli þín og annars notanda eða einhvers þriðja aðila á Temu ber okkur engin skylda til að blanda okkur í málið.
10. Kaup
10.1 Þú, viðskiptavinurinn, berð ábyrgð á því að lesa alla vörulýsinguna áður en þú kaupir vörur. Lágmarksupphæðar kann að vera krafist til að leggja inn pöntun, sem getur verið breytileg eftir því hvort þetta er fyrsta pöntunin þín eða síðari pöntun. Viðeigandi lágmarksupphæð og skilmálar birtast þér á upplýsingasíðu vörunnar áður en þú leggur inn pöntunina.
Með því að staðfesta kaupin staðfestir þú ábyrgð þína á að greiða heildarkostnað pöntunarinnar, þ.m.t. tollgjöld, skatta, sendingarkostnað og önnur viðeigandi gjöld sem kunna að vera lögð á vegna tollafgreiðslu. Nema annað sé tekið fram eru tollgjöld, VSK og önnur viðeigandi gjöld sem kunna að vera lögð á vegna tollafgreiðslu innifalin í öllum verðum sem birt eru á vefsvæði okkar í gjaldmiðli hlutaðeigandi lands. Sendingarkostnaður getur bæst við eftir því hvaða vörur þú kaupir og hvaða sendingarmáta þú velur og verður hann birtur þér á skýran hátt áður en þú staðfestir pöntunina.
Þó að við veitum þér aðstoð í þjónustuveri og við vöruskil samþykkir þú að (i) samningurinn um kaup á vörum er eingöngu gerður á milli þín og viðskiptaaðila sem er þriðji aðili og við erum hvorki aðilar að slíkum samningi, né umboðsmenn eða fulltrúar viðskiptaaðila, og (ii) þar sem við á munt þú gegna hlutverki innflytjanda keyptra vara og þú veitir okkur hér með leyfi til að tilnefna flutningsmiðlara til að koma fram sem beinn fulltrúi þinn og greiða hvers kyns tollgjöld, skatta og gjöld fyrir þína hönd.
Athugaðu að aðeins viðskiptaaðilar sem eru þriðju aðilar og stunda viðskipti með vörur í atvinnuskyni hafa rétt til að selja vörur á Temu.
10.2 Upplýsingar að því er varðar vörur (t.d. verðlagningu, vörulýsingar, framboð, afhendingarvalkosti og áætlaðan afhendingartíma) er að finna á vöruskráningarsíðunni á Temu. Þó að við leggjum okkur fram um að veita nákvæmar upplýsingar á Temu geta innsláttarvillur, rangfærslur eða vanræksla sem tengist vöruupplýsingum átt sér stað. Með fyrirvara um gildandi lög og nema annað sé tekið fram í þessum skilmálum áskiljum við okkur rétt til að leiðrétta og breyta upplýsingum eða afturkalla pantanir eða hluta pantana áður en varan er send ef einhverjar vöruupplýsingar á Temu eru rangar. Í slíkum tilvikum kunnum við að hafa samband við þig til að fá leiðbeiningar eða láta þig vita af slíkri afturköllun og endurgreiða þér fyrir slíka afturköllun. Með fyrirvara um lögbundinn rétt þinn og nema annað sé tekið fram í þjónustunni getur þú afturkallað pöntunina þína án kostnaðar og án undangenginnar tilkynningar hvenær sem er áður en henni er pakkað fyrir sendingu og fengið endurgreiðslu vegna slíkrar afturköllunar. Jafnvel þótt vörunni hafi þegar verið pakkað fyrir sendingu getur þú samt skilað henni eftir að þú færð hana og fengið endurgreiðslu fyrir slík skil. Frekari upplýsingar um afturkallanir á pöntunum, skil og endurgreiðslu er að finna hjá þjónustumiðstöð okkar og í skilmálum um skil og endurgreiðslu.
10.3 Skoðaðu vel allar lýsingar og takmarkanir varðandi vöruna sem þú hefur áhuga á áður en þú leggur inn pöntunina. Ef aðstæður þínar eru sérstakar (t.d. læknisfræðilegt eða heilsufarslegt ástand og/eða sérþarfir) og þær geta haft áhrif á eða orðið fyrir áhrifum af vörunni sem þú vilt kaupa er það alfarið á þína ábyrgð að láta okkur vita af því áður en þú pantar.
10.4 Við leggjum okkur fram um að tryggja að litir á vörum okkar á Temu séu eins nákvæmir og mögulegt er. Hins vegar getum við ekki ábyrgst að liturinn sem birtist á skjánum þínum sé nákvæmlega eins og litur vörunnar sem þú valdir að kaupa.
10.5 Með fyrirvara um gildandi lög gengst þú við því að vörurnar séu í samræmi við viðskiptin eða fyrirhuguð kaup ef þær: (i) eru í samræmi við lýsinguna sem kemur fram á Temu og búa yfir þeim eiginleikum sem tilgreindir eru á Temu; (ii) henta í þeim tilgangi sem sambærilegir hlutir eru venjulega notaðir til, og (iii) hafa þá eiginleika og virkni til að bera sem eru eðlileg í sambærilegum hlutum og sem sanngjarnt er að ætlast til. Innlend neytendalög veita þér lögbundin réttindi, þar á meðal lögbundna ábyrgð á því að varan samræmist samningi. Á grundvelli innlendra laga kannt þú að eiga rétt, einkum á því að (a) láta færa vöruna til samræmis, eða (b) rifta samningnum.
10.6 Áður en þú sendir inn pöntunina getur verið að þú getir valið sendingarmáta og fengið upplýsingar um áætlaðan afhendingardag pöntunarinnar. Þér verður gefinn kostur á að velja milli greiðslumáta sem eru í boði í þínu lögsagnarumdæmi. Til að geta gengið frá kaupum verður þú að veita nákvæmar og heildstæðar upplýsingar um gildan greiðslumáta, svo sem kreditkort, sem þú hefur heimild til að nota. Þú verður tafarlaust að uppfæra reikninginn þinn með öllum breytingum sem þú gerir á greiðslumátanum þínum. MEÐ ÞVÍ AÐ VEITA UPPLÝSINGAR UM GREIÐSLUMÁTA OG SAMÞYKKJA TILTEKIN KAUP HEIMILAR ÞÚ OKKUR EÐA HLUTDEILDARFÉLÖGUM OKKAR EÐA UMBOÐSMÖNNUM OKKAR EÐA GREIÐSLUVINNSLUAÐILUM AÐ SKULDFÆRA GREIÐSLUMÁTANN FYRIR: (A) UPPHÆÐUM FYRIR TILTEKNAR VÖRUR SEM ÞÚ HYGGST KAUPA; (B) ÖLLUM VIÐEIGANDI TOLLUM, SKÖTTUM, SENDINGARKOSTNAÐI OG ÖLLUM ÖÐRUM VIÐEIGANDI GJÖLDUM SEM KUNNA AÐ LEGGJAST Á VEGNA TOLLAFGREIÐSLU; OG (C) ÖLLUM ÖÐRUM GJÖLDUM SEM STOFNAÐ ER TIL Í TENGSLUM VIÐ NOTKUN ÞÍNA Á ÞJÓNUSTUNNI, EINS OG TEKIÐ ER SAMAN ÁÐUR EN ÞÚ SAMÞYKKIR GREIÐSLUNA. Við kunnum að hafna, frysta eða halda færslunni þinni eftir af hvaða ástæðu sem er eins og heimilt er samkvæmt gildandi lögum, þar með talið vegna gruns um svik, til að vinna gegn peningaþvætti og uppfylla reglur um refsiaðgerðir, eða ef við teljum vegna raunhæfra ástæðna að færslan þín valdi okkur eða þriðja aðila einhvers konar áhættu.
10.7 Færsluhirðar kunna að innheimta gjöld fyrir kaup þín í gegnum Temu. Þú færð upplýsingar um slík úrvinnslugjöld í gegnum Temu. Notkun þín á þjónustunni og greiðsluvinnslunni sem færsluhirðirinn býður upp á er háð samningi þínum við færsluhirðinn og þeim breytingum sem kunna að verða á honum öðru hverju. Skilyrði fyrir notkun greiðsluþjónustunnar er að þú veitir nákvæmar og ítarlegar upplýsingar og þú heimilar okkur að deila þessum upplýsingum með færsluhirðinum.
10.8 Greiðsluskyldu þinni er fullnægt þegar greiðsla þín á umsömdu verði hefur borist. Þú getur sótt pöntunaryfirlitið þitt á vefsvæði okkar.
11. Endurgreiðslur, skipti og tengd atriði
11.1 Þjónustuver okkar veitir aðstoð við greiðslur, skil, endurgreiðslur og önnur atriði í tengslum við kaup þín á vörum.
11.2 Við viljum að þú sért ánægð(ur) með kaup þín í gegnum þjónustuna. Þú kannt að eiga rétt á skilum og endurgreiðslu fyrir allar vörur sem keyptar eru á Temu. Frekari upplýsingar um skil og endurgreiðslu er að finna í skilmálum okkar um skil og endurgreiðslu. Fylgdu leiðbeiningunum í skilmálunum ef þú vilt leggja fram beiðni um endurgreiðslu. Þú staðfestir og samþykkir að við getum endurgreitt þér í samræmi við skilmála um skil og endurgreiðslu.
12. Verðlaun
12.1 Þú kannt að fá inneignir, afsláttarmiða, reiðufé, gjafir eða annars konar verðlaun með því að nota þjónustuna (sameiginlega „verðlaun“). Sum verðlaun má aðeins nota fyrir afslátt af eða greiðslu vegna gildra kaupa í eða í gegnum þjónustuna (en hafðu í huga að ekki er víst að allar vörur séu gildar) og ekki er hægt að leysa slík verðlaun út fyrir reiðufé, nema í lögsagnarumdæmum þar sem þess er krafist samkvæmt lögum. Þú skalt lesa upplýsingar og gildandi reglur um mismunandi verðlaun vel. Komi upp ósamræmi milli skilyrða sem gilda um verðlaunin og þessara skilmála skulu sérstök skilyrði fyrir verðlaunin gilda.
13. Riftun á tengslum okkar
13.1 Þér er frjálst að hætta að nota þjónustuna hvenær sem er. Okkur er einnig frjálst að loka tímabundið eða varanlega fyrir notkun þína á þjónustunni eða reikningnum þínum ef þú brýtur gegn þessum skilmálum eða stefnunum, eins og við ákveðum með sanngjörnum hætti. Þessir skilmálar verða áfram aðfararhæfir gagnvart þér jafnvel eftir að lokað hefur verið tímabundið eða varanlega fyrir notkun þína á þjónustunni og engar ógreiddar upphæðir sem þú skuldar okkur munu falla niður.
13.2 Ef reikningnum þínum er lokað verður allt efni og öll verðlaun sem tengjast reikningnum þínum felld niður og afturkölluð. Þú skalt reyna að nota öll eftirstandandi verðlaun áður en slík lokun tekur gildi.
13.3 Öll ákvæði þessara skilmála, sem í eðli sínu ættu að halda gildi sínu, skulu halda gildi sínu eftir uppsögn þessara skilmála, þar með talið án takmarkana eignarréttarákvæði, fyrirvarar um ábyrgð og takmarkanir á ábyrgð.
14. Takmarkanir á ábyrgð
14.1 Með fyrirvara um hluta 14.2 berum við aðeins bótaábyrgð gagnvart þér hvað varðar samningsbundna skyldu okkar til að veita þjónustuna. Í engum tilvikum berum við ábyrgð á neinum aðgerðum eða vanrækslu þriðju aðila.
14.2 Eftirfarandi reglur gilda um ábyrgð okkar gagnvart þér:
(1) Við berum ótakmarkaða ábyrgð á tjóni af ásetningi eða vegna stórfellds gáleysis okkar, starfsmanna okkar og þeirra sem starfa í okkar nafni, sem og ef um er að ræða sviksamlega leynd á göllum, brot á beinum ábyrgðum sem veittar eru samkvæmt þessum skilmálum og tjón sem stafar af persónutjóni (líf, líkami og heilsa).
(2) Við erum aðeins skaðabótaskyld vegna annars tjóns ef það má rekja til brots á skuldbindingu sem verður að uppfylla til að gera tilhlýðilega framkvæmd samningsins mögulega og sem hinn samningsaðilinn getur venjulega reitt sig á að sé höfð í heiðri. Jafnframt takmarkast ábyrgð okkar á slíku öðru tjóni við það tjón sem talið er dæmigert fyrir þessa tegund samnings og fyrirsjáanlegt. Við berum ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegu tapi. Ófyrirsjáanlegt tap er tap sem ekki er búist við, og ekki var augljóst að myndi verða, og ekkert sem þú sagðir við okkur áður en þú gekkst undir þennan samning gaf til kynna að við hefðum átt von á því að það myndi verða. Mögulegar bótaábyrgðir samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð haldast óbreyttar. Engin frekari ábyrgð gildir.
(3) Við ábyrgjumst ekki eða tökum á okkur ábyrgð á skuldbindingum samkvæmt samningum sem gerðir hafa verið við þriðju aðila.
(4) Enn fremur berum við ekki ábyrgð á nákvæmni, áreiðanleika eða heilleika efnis frá þriðja aðila sem veitt er á Temu án endurgjalds eða tjóni sem kann að verða vegna slíks efnis.
(5) Ekki er víst að öll lönd heimili tilteknar takmarkanir sem taldar eru upp hér að framan. Þessar takmarkanir gilda að því marki sem gildandi lög leyfa og þú kannt að hafa viðbótarréttindi samkvæmt innlendum lögum um neytendavernd.
15. Skaðleysi
15.1 Þú samþykkir að gera okkur skaðlaus gegn hvers kyns og öllum kröfum sem aðrir notendur eða aðrir þriðju aðilar gera á hendur okkur á grundvelli brots á réttindum þeirra vegna notkunar þinnar á þjónustunni eða brots þíns á þessum skilmálum. Þú berð kostnað okkar af nauðsynlegri málsvörn til að gera okkur skaðlaus samkvæmt þessum hluta. Þetta á ekki við ef þú berð ekki ábyrgð á slíkri kröfu. Ef upp kemur krafa sem fellur undir skaðleysisskuldbindingu samkvæmt þessum hluta 15 verður þú að veita okkur tafarlaust og nákvæmlega allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að rannsaka slíkar kröfur og verjast gegn þeim.
16. Snjallforritaverslanir
16.1 Notkunarleyfi fyrir forrit. Með fyrirvara um að þú farir að þessum skilmálum veitum við þér takmarkað, almennt, óframseljanlegt og afturkræft leyfi sem ekki er hægt að veita undirleyfi fyrir til að sækja, setja upp og nota afrit af farsímaforritinu Temu („forrit“) í tæki eða tölvu sem þú átt eða stjórnar eingöngu til einkanota eða í tilgangi sem ekki er viðskiptalegs eðlis. Enn fremur, með tilliti til allra forrita sem þú nálgast eða sækir á Apple App Store („forrit úr Apple App Store“), notar þú aðeins forrit úr Apple App Store (a) á Apple-merktri vöru sem keyrir iOS (séreignarstýrikerfi Apple) og (b) eins og heimilt er samkvæmt „notkunarreglum“ sem settar eru fram í þjónustuskilmálum Apple App Store. Þrátt fyrir fyrstu setninguna í þessum hluta kannt þú, að því er varðar forrit úr Apple App Store eða forrit sem nálgast má í gegnum eða sótt er í Google Play Store („forrit úr Google Play“), að hafa viðbótarréttindi að því er varðar aðgang að og notkun forritsins hvað varðar magnkaup eða í gegnum „Family Sharing“ í Apple-merktum vörum eða á sameiginlegum grundvelli innan tilgreinds fjölskylduhóps í samræmi við viðeigandi skilmála Apple eða Google og tengdar stillingar.
16.2 Snjallforritaverslanir. Þú staðfestir og samþykkir að aðgengi að forritinu og þjónustunni er háð þeim þriðja aðila sem þú fékkst notkunarleyfi fyrir forrit frá, t.d. Apple App Store eða Google Play Store (hvort um sig „snjallforritaverslun“). Þú staðfestir að þessir skilmálar eru á milli þín og okkar, en ekki þín og snjallforritaverslunarinnar. Við, en ekki snjallforritaverslunin, berum alla ábyrgð á þjónustunni, þar á meðal forritinu, innihaldinu, viðhaldi, stoðþjónustu og ábyrgðinni og á að bregðast við öllum tengdum kröfum (t.d. vöruábyrgð, fylgni við lög eða brot á hugverkarétti). Þú verður að hafa aðgang að þráðlausu neti til að geta notað forritið og þú samþykkir að greiða öll gjöld sem tengjast slíkum aðgangi. Þú samþykkir einnig að greiða öll gjöld (ef einhver eru) og viðeigandi skatta sem snjallforritaverslunin innheimtir í tengslum við þjónustuna, þar á meðal forritið. Þú samþykkir að fara að, og leyfi þitt til að nota forritið er háð því að þú farir að, öllum samningsskilmálum sem viðkomandi snjallforritaverslun setur þegar þú notar hvaða þjónustu sem er, þar á meðal forritið. Þú staðfestir að snjallforritaverslunin (og dótturfyrirtæki hennar) eru þriðju aðilar sem njóta réttinda samkvæmt þessum skilmálum og hafa rétt til að framfylgja þeim.
16.3 Aðgangur að og niðurhal á forritinu úr Apple App Store. Eftirfarandi á við um öll forrit frá Apple App Store sem hægt er að nálgast í gegnum eða sækja á Apple App Store:
(1) Þú staðfestir og samþykkir að (i) þessir skilmálar eru aðeins gerðir á milli þín og okkar, en ekki Apple, og að (ii) við, ekki Apple, berum alla ábyrgð á þessu forriti úr Apple App Store og efni þess. Notkun þín á forriti úr Apple App Store verður að vera í samræmi við þjónustuskilmála Apple App Store.
(2) Þú staðfestir að Apple ber engin skylda til þess að veita viðhald eða stuðningsþjónustu að því er varðar þetta forrit úr Apple App Store.
(3) Komi til þess að þetta forrit úr Apple App Store samræmist ekki neinni gildandi ábyrgð getur þú tilkynnt Apple um það og Apple mun endurgreiða þér kaupverðið fyrir það forrit úr Apple App Store og að því marki sem gildandi lög leyfa mun Apple ekki bera neina aðra ábyrgð hvað varðar þetta forrit úr Apple App Store. Eins og á milli Apple og okkar eru allar aðrar kröfur, tap, skaðabótaskylda, tjón, kostnaður eða útgjöld sem rekja má til vanefnda á hvers konar ábyrgðarskilmálum alfarið á okkar ábyrgð.
(4) Þú og við staðfestum að, með sama hætti og á milli Apple og okkar, ber Apple ekki ábyrgð á að bregðast við kröfum sem þú hefur gert eða kröfum þriðja aðila sem tengjast forriti úr Apple App Store eða vörslu þinni og notkun á forriti úr Apple App Store, þar með talið en ekki takmarkað við: (i) kröfur um skaðsemisábyrgð; (ii) allar kröfur um að forritið úr Apple App Store samræmist ekki kröfum samkvæmt gildandi lögum eða reglum; og (iii) kröfur sem falla undir neytendavernd, persónuvernd eða álíka löggjöf.
(5) Þú og við viðurkennum að ef þriðji aðili heldur því fram að forrit úr Apple App Store eða varsla þín og notkun á því forriti úr Apple App Store brjóti í bága við hugverkaréttindi þess þriðja aðila berum, eins og á milli Apple og okkar, við, en ekki Apple, alfarið ábyrgð á rannsókn, vörn, sáttargerð og uppgjöri allra slíkra krafna um brot á hugverkarétti að því marki sem krafist er í þessum skilmálum.
(6) Þú og við staðfestum og samþykkjum að Apple, og dótturfyrirtæki Apple, eru þriðju aðilar sem njóta réttinda samkvæmt þessum skilmálum í tengslum við leyfi þitt fyrir viðkomandi forrit úr Apple App Store og að þegar þú samþykkir þessa skilmála fær Apple rétt (og talið verður að Apple hafi samþykkt þann rétt) til að framfylgja þessum skilmálum í tengslum við leyfi þitt fyrir forrit úr Apple App Store gegn þér sem þriðja aðila sem nýtur réttinda samkvæmt þeim.
(7) Án þess að takmarka aðra skilmála þessara skilmála verður þú að fara öllum viðeigandi samningsskilmálum þriðja aðila þegar þú notar þetta forrit úr Apple App Store.
17. Almennt
17.1 Framsal. Þú mátt ekki framselja, úthluta eða yfirfæra þessa skilmála, eða réttindi þín og skyldur samkvæmt þeim, til nokkurs annars aðila á nokkurn hátt (með lögum eða á annan hátt) án skriflegs samþykkis okkar og hvers kyns tilraunir til framsals, samninga um undirverktöku, úthlutunar eða yfirfærslu sem brjóta í bága við framangreint teljast ógildar. Við getum flutt, úthlutað eða framselt þessa skilmála og réttindi þeirra og skyldur samkvæmt þeim til annarra aðila án þíns samþykkis, nema annað sé tekið fram í þessum skilmálum og í öllum tilvikum með fyrirvara um lagaleg réttindi þín.
17.2 Ófyrirséðir atburðir. Við berum enga ábyrgð á töfum eða vanefndum sem stafa af orsökum sem við höfum ekki stjórn á, þar með talið en ekki takmarkað við, óviðráðanlegum atburðum, stríði, hryðjuverkum, óeirðum, viðskiptabanni, athöfnum borgaralegra yfirvalda eða hernaðaryfirvalda, eldsvoðum, flóðum, slysum, heimsfaröldrum, verkföllum eða skertu aðgengi að flutningsaðstöðu, eldsneyti, orku, vinnuafli eða efni.
17.3 Lagaval. Ef þú býrð í landi utan Evrópusambandsins falla þessir skilmálar og hvers kyns ágreiningur sem kann að koma upp á milli þín og okkar samkvæmt þeim undir írsk lög. Ef þú býrð í landi innan Evrópusambandsins falla þeir undir gildissvið laga þess lands. Þú kannt einnig að eiga rétt á þeirri vernd sem lögboðin ákvæði laga búsetulands þíns veita þér. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samninga um sölu á vöru milli ríkja gildir ekki um samninginn á milli þín og okkar eða þessa skilmála.
17.4 Lausn deilumála. Við hvetjum þig til að hafa fyrst samband beint við þjónustuverið okkar til að leysa úr öllum málum á vinsamlegan hátt. Ef upp kemur ágreiningur sem ekki hefur tekist að leysa með vinsamlegum hætti, og hvað sem öðru líður, samþykkir þú og við að allur ágreiningur sem upp kemur vegna eða í tengslum við þessa skilmála skuli annaðhvort heyra undir dómstóla í Dublin á Írlandi eða dómstóla þess staðar þar sem þú átt lögheimili á Evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við gildandi lög.
Að undanskildu því sem krafist er í gildandi lögum Evrópska efnahagssvæðisins og innlendra laga ber okkur ekki skylda til að taka þátt í valfrjálsum úrræðum til lausnar deilumála sem eru ekki lögboðin samkvæmt gildandi reglugerðum.
17.5 Tilkynning. Þú staðfestir og samþykkir að við kunnum að senda þér tilkynningu með tölvupósti á nýjasta netfangið sem þú gafst okkur upp, sem telst vera gild tilkynning. Þú berð því ábyrgð á að við höfum réttar upplýsingar um netfang þitt á hverjum tíma. Þú getur sent okkur tilkynningu gegnum vefeyðublaðið okkar eða með pósti á eftirfarandi heimilisfang:
Whaleco Technology Limited, First Floor, 25 St Stephen's Green, Dublin 2, Ireland
Ef þú sendir okkur tilkynningu með pósti skaltu athuga að líta skal svo á að slík tilkynning hafi verið send þegar hún berst okkur með bréfi sem er sent með viðurkenndri póstþjónustu eða venjulegum fyrirframgreiddum pósti á framangreint heimilisfang.
17.6 Undanþága. Ef við bregðumst ekki við broti af þinni hálfu eða annarra fellir það ekki úr gildi rétt okkar til að bregðast við síðari eða svipuðum brotum.
17.7 Sjálfstæði einstakra greina. Ef eitthvert ákvæði þessara skilmála reynist óframkvæmanlegt eða ógilt verður það ákvæði takmarkað eða því eytt, að því marki sem nauðsynlegt er að lágmarki, þannig að þessir skilmálar haldi að öðru leyti fullu gildi og réttaráhrifum og séu framfylgjanlegir.
17.8 Þriðju aðilar sem njóta réttinda. Að undanskildum ákvæðum í hluta 16 er ekki gert ráð fyrir neinum þriðju aðilum sem njóta réttinda samkvæmt þessum skilmálum.
17.9 Samningurinn í heild. Þessir skilmálar eru endanlegur, heildstæður og eini samningur samningsaðila að því er varðar efni þeirra og koma í stað og sameina allar fyrri viðræður milli samningsaðila varðandi efni þeirra.
17.10 Árekstrar. Ef einhverjir viðskiptaaðilar sem eru þriðju aðilar gefa út viðbótarskilmála eða bjóða ábyrgðir sem eru hagstæðari en þessir skilmálar og/eða skilmálar okkar um skil og endurgreiðslu gilda slíkir viðbótarskilmálar. Temu tekur þó enga ábyrgð á neinum slíkum skilmálum og þú skalt fylgja leiðbeiningum viðskiptaaðilans eða hafa beint samband við hann til að tryggja að þessum skilmálum sé beitt, eða ef þú ert með einhverjar spurningar eða telur að einhverjir skilmálar séu ólöglegir eða ógildir. Ef einhverjir þessara viðbótarskilmála eru ólöglegir eða ógildir gilda lög um neytendavernd. Temu áskilur sér rétt til að fjarlægja eða takmarka aðgang að öllum upplýsingum sem brjóta í bága við gildandi lög þegar okkur verður kunnugt um þær.
18. Samskiptaupplýsingar
Samskiptaupplýsingar okkar eru sem hér segir:
Whaleco Technology Limited, First Floor, 25 St Stephen's Green, Dublin 2, Ireland
Hægt er að fá meiri upplýsingar í Um fyrirtækið – Fyrirtækjaupplýsingar.
