Temu | Stefna um hugverkarétt

Síðast uppfært: 7. janúar 2024

Við erum staðráðin í að vernda hugverkarétt allra og í því skyni höfum við yfirgripsmikla stefnu. Þessi stefna um hugverkarétt útskýrir hvernig við tökumst á við ásakanir um brot, hvernig heimilaðir aðilar geta sent inn tilkynningu um brot vegna efnis á vefsíðu og smáforriti okkar og hvernig ábyrgðaraðilar geta brugðist við tilkynningum sem varða skráningar þeirra. Við munum fjarlægja efni sem er tilkynnt vegna brots á hugverkarétti þegar við fáum tilkynningu sem uppfyllir skilyrði samkvæmt okkar stefnu. Hugverkaréttur vísar hér til höfundarréttar, skrásettra vörumerkja, einkaleyfa og annarra hugverkaréttinda samkvæmt lögum.

1. Tilkynning brota

(1) Til þess að senda inn tilkynningu um brot á hugverkarétti verður þú að vera sá rétthafi sem á hugverkaréttinn sem tilkynningin varðar eða fulltrúi með heimild frá rétthafa til að senda inn tilkynningar fyrir hans hönd.

(2) Við munum rannsaka skráningarnar eða innihaldið þegar tilkynning berst okkur. Athugaðu að allar tilkynningar sem berast okkur verða að vera sendar í góðri trú, ellegar sæta viðurlögum við meinsæri.

(3) Skilyrði er að innsendandi tilkynningar sé skráður inn á tilkynningagátt okkar fyrir brot á hugverkarétti á netinu („tilkynningagátt“). Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í tilkynningunni þinni:

  • Sértækt auðkenni hugverkaréttarins sem þú telur að brotið varði, þar á meðal skráningarnúmer, skriflega lýsingu á því efni sem fellur undir hugverkarétt, tengil á það efni sem fellur undir hugverkarétt, fyrstu dagsetningu notkunar/birtingar o.s.frv.

  • Eðli brotsins (hvort brotið tengist vörunni sjálfri, umbúðum, myndefni á upplýsingasíðu vörunnar eða texta á upplýsingasíðu vörunnar).

  • Listi yfir þær vörur sem brjóta gegn hugverkarétti (vefslóð/ir á upplýsingasíðu þeirrar vöru sem um ræðir).

  • Listi yfir brotlega aðila.

  • Skrifleg gögn sem styðja við grun um brot og hverjar aðrar upplýsingar sem gætu komið að gagni við úrvinnslu tilkynningarinnar (til dæmis auðkenni pöntunar, hafirðu keypt prufueintak af vörunni sem tilkynningin varðar).

  • Samskiptaupplýsingar þínar (nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang).

  • Aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru samkvæmt lögum.

(4) Við kunnum að biðja þig um ýtarupplýsingar við úrvinnslu málsins, svo sem skriflega staðfestingu eða önnur gögn sem varða hin meintu réttindi og eignarhald.

2. Tilkynning um brot gegn höfundarétti með notkun tilkynningareyðublaðs um brot gegn höfundarétti samkvæmt gildandi lögum um hugverkarétt

(1) Ef þú ert handhafi höfundaréttar eða hefur heimild til að koma fram fyrir hönd handhafa höfundaréttar sem talið er að brotið hafi verið gegn, getur þú sent tilkynningu um brot í gegnum tilkynningagáttina fyrir brot á hugverkarétti á netinu sem verður að innihalda eftirfarandi:

  • Skriflega eða rafræna undirskrift einstaklings sem hefur heimild til að koma fram fyrir hönd handhafa einkaréttar sem talið er að brotið hafi verið gegn.

  • Auðkenning hvers höfundaréttarvarins verks sem talið er að brotið hafi verið gegn. Tilkynning getur náð yfir mörg höfundaréttarvarin verk.

  • Auðkenningu efnis sem brýtur gegn höfundarétti og skal vera fjarlægt eða sem á að loka fyrir aðgang að, sem og upplýsingar sem nægja til þess að finna hvert eintak af slíku efni.

  • Fullnægjandi upplýsingar um hvernig hægt er að ná sambandi við þig, þar á meðal heimilisfang, símanúmer og netfang.

  • Yfirlýsingu þess efnis að þú sért í góðri trú um að notkun efnisins á þann hátt sem kvartað er yfir sé ekki heimiluð af handhafa höfundarréttar, umboðsmanni hans eða með lögum.

  • Yfirlýsingu frá þér þess efnis að (i) upplýsingarnar í tilkynningunni séu réttar og (ii) að viðlagðri refsingu fyrir meinsæri sért þú handhafi höfundaréttar eða hafir heimild til að koma fram fyrir hönd handhafa einkaréttar sem talið er að hafi verið brotið gegn.

  • Aðrar upplýsingar eða skjöl sem krafist er samkvæmt lögum.

(2) Gefir þú upp rangar upplýsingar um að efni brjóti gegn höfundarétti gætir þú borið skaðabótaskyldu. Ef þú ert ekki viss um hvort efnið brjóti gegn höfundarétti skaltu því leita ráðgjafar hjá lögfróðum aðilum áður en þú sendir okkur tilkynningu.

(3) Ef tilkynning þín um brot er samþykkt fjarlægjum við efnið sem þú tilkynntir og grípum til viðeigandi aðgerða gegn ábyrgðaraðilum. Við deilum ekki upplýsingum um aðgerðir sem eru ekki nú þegar opinberar.

(4) Reglur um endurtekin brot: Við erum skuldbundin til að vernda hugverkarétt og við endurtekin brot verður lokað á viðkomandi aðila, ef aðstæður leyfa.

3. Gagntilkynning vegna kröfu vegna höfundarréttarbrots samkvæmt gildandi lögum um hugverkarétt

(1) Ef efnisveitandi telur að efnið sem var fjarlægt (eða sem aðgangur var hindraður að) sé ekki brotlegt eða hafi rétta heimild getur efnisveitandi sent okkur gagntilkynningu með eftirfarandi upplýsingum:

  • Yfirlýsing sem útskýrir hvers vegna efnisveitandi telur að um mistök, ranga greiningu eða villu sé að ræða; og

  • Aðrar upplýsingar eða skjöl sem krafist er samkvæmt viðeigandi lögum.

(2) Ef okkur berst gagntilkynning munum við grípa til viðeigandi ráðstafana í samræmi við gildandi lög.

4. Afturköllun tilkynningar

Eigandi hugverkaréttarins eða gildur umboðsmaður sem tilkynnti brotið getur afturkallað tilkynninguna gegnum tilkynningagáttina fyrir brot á hugverkarétti. Í beiðni um afturköllun skulu koma fram skýrar upplýsingar um tilkynninguna sem send var inn með því að veita upplýsingar um umkvörtunaraðilann, hugverkaréttinn sem áður var haldið fram að brotið hafi verið gegn, sem og efnið sem kvörtunin varðar og beðið er um að fjarlægt verði.

5. Fölsk tilkynning

(1) Við áskiljum okkur rétt til að hafna tilkynningum um brot sem innihalda upplýsingar sem við teljum vera rangar, sviksamlegar, ófullnægjandi eða sendar inn með öðrum hætti gegn betri vitund. Við áskiljum okkur einnig rétt til þess að grípa til aðgerða gegn aðilum sem misnota þessa stefnu og viðeigandi lög.

(2) Endurtekin innsending rangra eða falskra tilkynninga getur leitt til sviptingar réttinda þinna til að senda inn tilkynningar.